... eins og kerlingin sagði en allir vita þó að margur verður af aurum api.
Nú fer hins vegar að styttast í fyrsta próf (nánar tiltekið eru fjórir dagar í það ef að einhver gleymdi að byrja að læra) og það þýðir aðeins eitt...
... jú rétt var það, þá styttist í að prófin verði búin! Það þýðir ennfremur aðeins eitt...
... jú mikið rétt, við þurfum að fara að huga að lokahófi!
Eins og alþjóð veit þá er stórt próflokadjamm hjá deildinni 16. maí en það er svona spurning hvort að við stílarnir eigum ekki að hittast sama kvöld og við klárum prófin, s.s. 13. maí, fara út að borða og fara svo í partý heim til Ara (hann veit af því, engar áhyggjur) þar sem við kveðjum þetta fyrsta ár okkar í lyfjafræðideild með góðum þriðjudagshvelli.
Hvernig líst fólki á þetta plan?
Ég veit að vísu að sumir eru að fara að byrja að vinna strax daginn eftir en hver hefur ekki mætt þunnur fyrsta dag í nýrri vinnu áður?
Þetta verður tryllt krakkar. Alveg tryllt.
Kv. Anna Karen, tryllt yfir Örverufræði
P.s. hér er smá jútjúb sem ætti að gleðja ykkur á þessum erfiðu tímum:
http://youtube.com/watch?v=ZA1NoOOoaNw